Tónleikarnir „Klassíkin okkar“ sem Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV hafa staðið fyrir undanfarin tvö ár hafa vakið fádæma hrifningu meðal landsmanna. Í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að Ísland varð fullveldi var leikurinn endurtekinn með áherslu á íslenska tónlist 20. og 21. aldar. Landsmenn gátu valið eftirlætis íslensku tónverkin sín í kosningu á ruv.is og munu þau tónverk sem voru hlutskörpust hljóma á sérstökum hátíðartónleikum í Eldborg sem um leið er upptaktur að glæsilegu starfsári Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Einleikarar á tónleikunum verða Sæunn Þorsteinsdóttir sem leikur Bow to String eftir Daníel Bjarnason og Emilía Rós Sigfúsdóttir sem flytur Siciliano eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Einsöngvarar verða Hallveig Rúnarsdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Sveinn Dúa Hjörleifsson og Þóra Einarsdóttir. Einnig koma fram Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar, Gradualekór Langholtskirkju undir stjórn Þorvalds Arnar Davíðssonar, Skólakór Kársness undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og Söngsveitin Fílharmónía undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar. Hljómsveitarstjóri á tónleikunum er Daníel Bjarnason.
Kynnar eru Halla Oddný Magnúsdóttir og Guðni Tómasson en tónleikarnir verða í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV.
-
Efnisskrá
Sigfús Einarsson Draumalandið
Karl O. Runólfsson Í fjarlægð
Sigvaldi Kaldalóns Ave Maria
Páll Ísólfsson Í dag skein sól
Jón Leifs Íslenskur rímnadans op. 11 nr. 4
Jón Nordal Hvert örstutt spor
Jórunn Viðar Vökuró
Magnús Blöndal Jóhannsson Sveitin milli sanda
Atli Heimir Sveinsson Snert hörpu mína
Sigurður Þórðarson Sjá, dagar koma
Páll Ísólfsson Brennið þið, vitar
Þorkell Sigurbjörnsson Heyr himna smiður
Jón Ásgeirsson Hjá lygnri móðu
Jón Nordal Smávinir fagrir
Atli Heimir Intermezzo úr Dimmalimm
Hildigunnur Rúnarsdóttir Sanctus úr Guðbrandsmessu
Þorkell Sigurbjörnsson Siciliano úr Columbine
Daníel Bjarnason Bow to String, 3. kafli
Jórunn Viðar Eldur
Páll Ísólfsson Úr útsæ rísa íslands fjöll
-
Hljómsveitarstjóri
Daníel Bjarnason
-
Einleikarar
Emilía Rós Sigfúsdóttir
Katie Buckley
Sæunn Þorsteinsdóttir
-
Einsöngvarar
Hallveig Rúnarsdóttir
Hildigunnur Einarsdóttir
Sveinn Dúa Hjörleifsson
Þóra Einarsdóttir
-
Kórar
Gradualekór Langholtskirkju
Graduale Nobili
Hamrahlíðarkórinn
Karlakórinn Fóstbræður
Skólakór Kársness
Söngsveitin Fílharmónía