Mahler nr. 2 á Listahátíð
-
Efnisskrá
-
Hljómsveitarstjóri
-
Einsöngvarar
-
Kór
Undrabarnið frá Úsbekistan, Behzod Abduraimov, spilaði sig inn í hjörtu tónleikagesta Sinfóníuhljómsveitar Íslands haustið 2015 þegar hann lék píanókonsert eftir Prokofíev með slíkum tilþrifum að tónleikagestir supu hveljur af hrifningu. Nú snýr hann aftur með einn vinsælasta konsert allra tíma í farteskinu. Píanókonsert nr. 2 eftir Rakhmanínov er ljóðrænn og tilþrifamikill í senn, sannkölluð flugeldasýning fyrir þá sem hafa gaman af píanóleik eins og hann gerist bestur.
Florence Price var fyrsta bandaríska blökkukonan til að leggja fyrir sig sinfónískar tónsmíðar og það með prýðilegum árangri. Hún vann til verðlauna fyrir fyrstu sinfóníu sína árið 1932 og í kjölfarið var verkið flutt af Sinfóníuhljómsveitinni í Chicago. Á síðustu árum hefur tónlist hennar verið grafin úr gleymsku og nú hljómar hún í fyrsta sinn á Íslandi. Bandaríski hljómsveitarstjórinn Joshua Weilerstein hlaut fyrstu verðlaun í hinni virtu Malko- hljómsveitarstjórakeppni árið 2009. Hann hefur síðan ferðast víða um lönd og stjórnað m.a. öllum helstu hljómsveitum Norðurlanda og hinni margfrægu Concertgebouw-hljómsveit í Amsterdam.
Ludwig van Beethoven Egmont, forleikur
Florence Price Sinfónía nr. 1
Sergej Rakhmanínov Píanókonsert nr. 2
Íslenska óperan sýnir óperuna Brothers eftir Daníel Bjarnason í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð í Reykjavík í júní 2018. Verkið sem fjallar um stríð, bræðralag og ástir, er byggt á samnefndri kvikmynd eftir Susanne Bier sem margir þekkja og librettóið er eftir Kerstin Perski.
Óperan, sem er fyrsta ópera tónskáldsins, var frumsýnd í Árósum síðastliðið haust í Den Jyske Opera og hlaut frábærar viðtökur áheyrenda og einróma lof gagnrýnenda. Brothers var valið tónverk ársins í sígildri- og samtímatónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum 2018. Leikstjóri uppfærslunnar er Kasper Holten sem lét nýverið af störfum sem óperustjóri Covent Garden.
Aðalæfing fyrir óperuna er föstudaginn 8. júní kl. 21:00.
Oddur Arnþór Jónsson
Marie Arnet
Selma Buch Ørum Villumsen
Elmar Gilbertsson
Þóra Einarsdóttir
James Laing
Jakob Zethner
Hanna Dóra Sturludóttir
Paul Carey Jones
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kór Íslensku óperunnar
Daníel Bjarnason
Kerstin Perski
Kasper Holten