Dagsetning | Staðsetning | Verð |
---|---|---|
21. okt. 2021 » 20:00 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 2.900 – 5.900 kr. |
-
Efnisskrá
-
Hljómsveitarstjóri
-
Dansarar
Ásgeir Helgi Magnússon, Charmene Pang, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Félix Urbina Alejandre, Shota Inoue, Sigurður Andrean Sigurgeirsson & Una Björg Bjarnadóttir.
AIŌN er innblásið af abstrakt hugsun um tímann og ferðalag milli vídda. Í þessu nýja verki bjóða Erna Ómarsdóttir danshöfundur og Anna Þorvaldsdóttir tónskáld áhorfendum upp á töfrandi heim þar sem tónlist og dans mætast á óvanalegan hátt og dansarar Íslenska dansflokksins og hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitarinnar renna saman í eitt.
Anna og Erna eru báðar áhrifavaldar á heimsvísu, hvor í sinni listgrein. Anna Þorvaldsdóttir er staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hafa verk hennar verið flutt af fremstu hljómsveitum heims, meðal annars Fílharmóníusveitunum í Berlín, New York og Los Angeles.
Erna Ómarsdóttir er listdansstjóri Íslenska dansflokksins og hefur hún hlotið fjölda verðlauna fyrir verk sín sem sýnd hafa verið á helstu listahátíðum og leikhúsum í Evrópu og víðar.
AIŌN er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar, en verkið var frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar og Íslenska dansflokknum í maí 2019 í Tónlistarhúsinu í Gautaborg. Flutningurinn hlaut frábærar viðtökur gagnrýnenda jafnt sem tónleikagesta. Gagnrýnandi Dagens Nyheter lýsti flutningnum sem „eins konar náttúruafli“ og Die Presse í Þýskalandi sagði verkið „sönnun þess hve tónlist og hreyfing eiga vel saman. Tónlistin og dansararnir verða sem ein heild.“
Ekki missa af einstökum viðburði fyrir alla þá sem hafa áhuga á spennandi nýsköpun í tónlist og dansi á Íslandi.