Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
---|---|---|---|---|
26. apr. 2018 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | Uppselt | ||
27. apr. 2018 » 19:30 » Föstudagur | Eldborg | Harpa | Uppselt | ||
Uppselt |
-
Kvikmynd
Miloš Forman og Peter Shaffer Amadeus
-
Hljómsveitarstjóri
-
Einleikari
-
Kór
-
Kórstjóri
Á þessum bíótónleikum verður kvikmyndin Amadeus eftir Miloš Forman sýnd í Eldborg með lifandi leik Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Kvikmyndin vakti heimsathygli þegar hún var frumsýnt og sló öll met. Hún hlaut átta Óskarsverðlaun árið 1985 og er almennt talin með bestu tónlistarkvikmyndum allra tíma. Sagan segir frá samskiptum þeirra Mozarts og Salieris í Vínarborg, en Salieri tekur sárt að horfa upp á ótvíræða yfirburði Mozarts í tónlistinni og honum þykir Guð hafa svikið sig með því að útdeila snilligáfunni með þessum hætti. Meðal leikara eru Tom Hulce í hlutverki tónskáldsins og F. Murray Abraham sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir ógleymanlega túlkun sína á Salieri.
Nú gefst einstakt tækifæri til að upplifa bæði kvikmyndina og stórfenglega tónlist Mozarts í lifandi flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Mótettukórs Hallgrímskirkju. Ekki missa af þessum stórbrotna viðburði.
Áætluð lengd kvikmyndarinnar eru þrír klukkutímar með hléi. Athugið að börn yngri en 12 ára þurfa að vera í fylgd forráðamanna.