EN

Attacca!

Upphafstónleikar með Barböru Hannigan

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
3. sep. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.100 - 11.500 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Charles Ives From the Steeples and the Mountains
    Hugi Guðmundsson Undark - frumflutningur
    John Cage 4:33
    Gustav Mahler Sinfónía nr. 1

  • Hljómsveitarstjóri

    Barbara Hannigan

Barbara Hannigan, nýr aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, stýrir einstökum upphafstónleikum starfsársins þar sem tími og rúm renna saman. Tónleikarnir bera yfirskriftina Attacca!, en það hugtak er notað í tónlist þegar kaflar eða tónverk eru flutt án þess að hlé sé gert á milli þeirra. Kvöldið hefst á áhrifamikilli tónlist fyrir slagverk og málmblásara eftir bandaríska tónskáldið Charles Ives sem leiðir okkur inn í frumflutning á tónverkinu Undark eftir nýtt staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Huga Guðmundsson. Þá fáum við að upplifa saman þekktustu þögn tónlistarsögunnar í 4 mínútur og 33 sekúndur. Þetta umtalaða listaverk er eftir hinn tilraunaglaða John Cage og vildi hann með því vekja hlustandann til meðvitundar um eigin líkama, umhverfi sitt og þá staðreynd að ekki er til neitt sem heitir alger þögn. Tónleikunum lýkur á að fyrsta sinfónía Mahlers fær að hljóma í öllum sínum stórfengleika.