Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
---|---|---|---|---|
4. okt. 2025 » 11:30 » Laugardagur | Flói | Harpa | |||
4. okt. 2025 » 12:45 » Laugardagur | Flói | Harpa | |||
Bóka miða / Aðgangur ókeypis |
-
Efnisskrá
Fjölbreytt og skemmtileg tónlist
-
Hljómsveitarstjóri
Mirian Khukhunaishvili
-
Einleikari
Sigurgeir Agnarsson
-
Kynnir
Tobba tófa Steinunn Arinbjarnardóttir
Barnastundir Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru sniðnar að allra yngstu áheyrendum hljómsveitarinnar. Þær eru haldnar á laugardagsmorgnum og eru um hálftímalangar í opnu og fallegu umhverfi Hörpu, í Flóa. Áhersla er lögð á létt og vinalegt andrúmsloft og nánd barnanna við hljómsveitina. Á fyrstu Barnastund vetrarins eru dýrin stór og smá í forgrunni.
Þar hljóma m.a. Dýravísur, Kattadúettinn, Krummi krunkar úti og lög úr Dýrunum í Hálsaskógi og Skógarlífi. Kynnir í Barnastundinni er engin önnur en Tobba tófa, og Maxímús Músíkús kemur að sjálfsögðu í heimsókn í Flóa.
Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða á Barnastundina.
Barnastund að vori verður haldin í Flóa laugardaginn 18. apríl.