| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 10. sep. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 3.100 - 11.500 kr. | ||
| Miðasala hefst 8. júní | ||||
-
Efnisskrá
Albert Roussel Le Festin de l'araignée / Köngulóarveislan
Oliver Messiaen Oiseaux exotiques / Framandi fuglar
Benjamin Britten Les Illuminations
Maurice Ravel Píanókonsert í G-dúr
-
Hljómsveitarstjóri og sópran
Barbara Hannigan
-
Einleikari
Bertrand Chamayou píanó
Nýr staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands, píanóleikarinn Bertrand Chamayou og sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn, Barbara Hannigan, verða í brennidepli á þessum fjölbreyttu tónleikum sem óneitanlega hafa sterkt franskt yfirbragð. Chamayou leikur tvö tónverk eftir samlanda sína frá Frakklandi sem eiga það sameiginlegt að búa yfir einstökum litbrigðum. Söngur framandi fugla Ameríku og Asíu varð Olivier Messiaen að innblæstri í litskrúðugu verki fyrir píanó, blásara og slagverk á meðan Ravel hugsaði fyrst og fremst um að skrifa léttan og skemmtilegan píanókonsert þar sem einleikarinn fengi að glansa. Tónskáldið sótti þar innblástur í þjóðtónlist forfeðra sinna í Baskalandi og töfrar fram tápmikil stef og einn fegursta hæga þátt píanóbókmenntanna. Ljóð Arthurs Rimbaud voru kveikjan að tónverki Benjamins Britten, Les Illuminations. Þau boða okkur að stórborgin sé að minnsta kosti jafn villt og frumskógurinn! Öldur sem brotna við ströndina, fjörugar skrúðgöngur og töfrandi ljós sem lýsa dansandi elskendum í kvöldhúminu. Barbara Hannigan og strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands flytja okkur þetta kraftmikla meistaraverk.
Í upphafi tónleikanna hljóma atriði úr ballettinum Köngulóarveislunni eftir Albert Roussel, þar sem við kynnumst tælingarmætti köngulóarinnar, harðduglegum maurum og lífshlaupi dægurflugunnar.
