EN

Daði Freyr & Sinfó

á Iceland Airwaves

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
5. nóv. 2026 » 19:00 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa Miðasala hefst 30. apríl
  • Efnisskrá

    Tónlist Daða Freys í nýjum útsetningum

  • Hljómsveitarstjóri

    Daníel Bjarnason

Daði Freyr hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af ástsælustu og skemmtilegustu tónlistarmönnum landsins. Hann er þekktur fyrir snjallar og húmorískar lagasmíðar, grípandi synthapopp og ófyrirsjáanlega nálgun sem höfðar til áheyrenda um allan heim. Á þessum tónleikum stígur Daði Freyr á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg. Hér er tónlist hans færð í nýjan búning þar sem sinfónískar útsetningar mæta einkennandi popphljómi Daða Freys og úr verður einstök tónlistarupplifun. Daði Freyr vakti heimsathygli árið 2020 með laginu Think About Things, sem fór sigurför á netinu víða um heim og hefur síðan þá byggt upp stóran alþjóðlegan aðdáendahóp. Á tónleikunum verður flutt nýtt efni frá Daða Frey og að sjálfsögðu eldri slagarar tónlistarmannsins.

Viðburðurinn er sérstakur Partner Event á Airwaves. Áður hefur Sinfó haldið tónleika á hátíðinni með John Grant, Jóhanni Jóhannssyni, Emilíönu Torrini, Ólafi Arnalds, Ásgeiri Trausta, Mugison og fleirum við góðan orðstír.