Dagsetning | Staðsetning | Verð | |
---|---|---|---|
14. mar. 2020 » 14:00 - 15:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 2.600 - 3.000 kr. | Aflýst |
14. mar. 2020 » 16:00 - 17:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 2.600 - 3.000 kr. | Aflýst |
-
Efnisskrá
Atli Heimir Sveinsson Dimmalimm
Pjotr Tsjajkovskíj Úr Svanavatninu
Atli Heimir Sveinsson Kvæðið um fuglana
-
Hljómsveitarstjóri
-
Kynnir
Trúðurinn Barbara
-
Kór
Gradualekór Langholtskirkju
-
Dansarar
Nemendur úr Listdansskóla Íslands
Samkomubann hefur verið sett á hérlendis vegna kórónuveirunnar og tekur það gildi aðfaranótt mánudags. Í ljósi þessa hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands einnig ákveðið að aflýsa fjölskyldutónleikunum laugardaginn 14. mars. Athugið að miðahafar geta fært aðgöngumiða sína á aðra tónleika hljómsveitarinnar síðar á þessu starfsári, henti það ekki er hægt að fá miðann endurgreiddan í miðasölu Hörpu. Nánar hér.
Listmálarinn Muggur, Guðmundur Thorsteinsson, samdi ævintýrið um Dimmalimm árið 1921 handa lítilli frænku sinni þegar hann var á siglingu á Miðjarðarhafinu. Ævintýrið er meðal helstu gersema listamálarans og hann málaði gullfallegar myndir með sögunni sem tónleikagestir njóta meðan á flutningi tónlistarinnar stendur. Tónlist Atla Heimis Sveinssonar við verkið skipaði sér strax í flokk helstu djásna íslenskra tónverka. Nú verður það flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt kórstúlkum úr Gradualekór Langholtskirkju og dönsurum úr Listdansskóla Íslands.
Það er við hæfi á þessum ljúfu og fallegu tónleikum að fylgja Dimmalimm úr hlaði með völdum þáttum úr Svanavatninu eftir Tsjajkovskíj. Rússneski dansinn, Dans litlu svananna og fleiri þættir munu gleðja tónleikagesti í túlkun nemenda Listdansskóla Íslands. Þessum sannkölluðu ævintýratónleikum lýkur á Kvæðinu um fuglana eftir Atla Heimi Sveinsson.
Kynnir og sögumaður tónleikanna er trúðurinn Barbara, leikinn af Halldóru Geirharðsdóttur, og hljómsveitarstjóri er Bjarni Frímann Bjarnason.