Dagsetning | Staðsetning | Verð |
---|---|---|
19. ágú. 2017 » 15:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | Aðgangur ókeypis |
-
Efnisskrá
Úrval úr dagskrá Litla tónsprotans
-
Hljómsveitarstjóri
-
Gestir
Ævar Þór Benediktsson
Þórunn Arna Kristjánsdóttir
Sigurður Þór Óskarsson
Á þessum fjölskyldutónleikum má heyra brot af þeirri fjölbreyttu og skemmtilegu dagskrá sem í boði er í áskriftaröðinni Litla tónsprotanum. Tónleikagestir fá smjörþefinn af fjörugum sönglögum og hressilegum hljómsveitarslögurum sem fylla Eldborg af tilhlökkun yfir komandi tónleikavetri.
Góðir gestir koma í heimsókn og spreyta sig á tónlist tengdum ævintýrum og hrekkjalómum og Drekanum sem býr innra með okkur öllum. Hver veit nema einhver ungur og efnilegur hljómsveitarstjóri taki við tónsprotanum af Bernharði Wilkinsyni og stjórni Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Ókeypis er á tónleikana og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hægt er að nálgast miða frá kl. 11:00 á tónleikadegi í miðasölu Hörpu.