EN

Frönsk veisla

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
16. okt. 2025 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.990 - 10.100 kr.
Kaupa miða
  • Efnisskrá

    Louise Farrenc Forleikur nr. 1
    Gabriel Fauré Svíta úr Pelléas et Mélisande
    Maurice Ravel Tzigane
    Jean-Philippe Rameau Svíta úr Hippolyte et Aricie
    Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 31, Parísarsinfónían

  • Hljómsveitarstjóri og einleikari

    Malin Broman

Segja má að þessir tónleikar séu franskur tónlistarkonfektkassi með ýmsum bragðtegundum. Þeir hefjast á forleik úr smiðju Louise Farrenc en verk hennar hafa verið mörgum tónlistarleg uppgötvun á síðustu árum. Forboðnar ástir Pelléas og Mélisande hafa heillað mörg tónskáld en Gabriel Fauré samdi fyrstur leikhústónlist við þetta fræga symbólíska leikrit eftir Maurice Maeterlinck skömmu eftir að það kom fram á sjónarsviðið fyrir aldamótin 1900.

Hljómsveitarstjórinn og einleikarinn Malin Broman leikur því næst hið blóðheita Tzigane eftir Ravel, mikið glæsiverk fyrir fiðlu, og leiðir hljómsveitina áfram í glæsilegri barokksvítu Rameaus og snarpri háklassískri Parísarsinfóníu Mozarts. Verkið samdi Mozart í borginni við Signubakka og stimplaði sig um leið rækilega inn í tónlistarlíf Parísar.