EN

KK og Sinfó

Sérstakir gestir eru Ellen, Mugison og Jón Jónsson

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
22. maí 2025 » 20:00 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 4.900 - 14.900 kr.
23. maí 2025 » 20:00 » Föstudagur Eldborg | Harpa 4.900 - 14.900 kr.
Kaupa miða
  • Efnisskrá

    Mörg þekktustu laga KK í nýjum hljómsveitarútsetningum

  • _

    Sinfóníuhljómsveit Íslands

  • Hljómsveitarstjóri

    Anthony Weeden

  • Einsöngvari

    KK, Kristján Kristjánsson

  • Sérstakir Gestir

    Ellen Kristjánsdóttir
    Mugison
    Jón Jónsson

  • Kór

    Kammerkórinn Aurora

  • Kórstjóri

    Sigríður Soffía Hafliðadóttir

Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, er fyrir löngu orðinn einn af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar. Einlægni, húmor og hlýja einkenna tónlist hans og texta en hann hefur einnig verið áberandi í hlutverki samfélagsrýnis. Það má segja að KK hafi komið eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf með plötunni Bein leið, sem út kom árið 1992 og innihélt m.a. lögin Vegbúann og Þjóðveg, lög sem enn eru þjóðarsálinni afar kær. Hljómplötur KK eru nú orðnar rúmlega 20 talsins; ýmist sólóplötur, með KK bandinu, en einnig í samstarfi við annað tónlistarfólk.

Á þessum tónleikum flytja KK og Sinfó mörg þekktustu laga hans í nýjum hjómsveitarútsetningum. Sérstakir gestir á tónleikunum eru Ellen Kristjánsdóttir, Mugison, Jón Jónsson og Kammerkórinn Aurora. Lög KK spanna hans langa og farsæla feril og má þar nefna t.d. Álfablokkina, Grandhotel, Engla himins grétu í dag, Hafðu engar áhyggjur og I think of angels. 

Ekki missa af einstökum tónleikum með einstökum tónlistarmanni og Sinfóníuhljómsveit Íslands.