EN

Áshildur Haraldsdóttir

Flautuleikari

Áshildur Haraldsdóttir er flautuleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún nam flautuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk síðan háskólaprófum frá The New England Conservatory of Music, Juilliard skólanum í New York og Konservatoríinu í París. Hún hefur unnið til verðlauna í fjórum alþjóðlegum tónlistarkeppnum og hljóðritað fjóra einleiksgeisladiska. Auk þess að koma reglulega fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur hún leikið einleik með hljómsveitum í Ameríku, Evrópu og Afríku.