Ava Bahari
Einleikari
Ava Bahari, sem tímaritið The Strad lýsti sem „athyglisverðri rísandi stjörnu“, er afar hæfileikaríkur sænskur fiðluleikari sem gjarnan fer ótroðnar slóðir í efnisvali. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna, þar á meðal verðlaun í Premio Paganini keppninni í Genova (2021), Concours International Tibor Varga í Sion (2021) og Aurora tónlistarkeppninni í Stokkhólmi (2019).
Bahari er núverandi staðarlistamaður Gautaborgarsinfóníunnar og lék hún fiðlukonsert Stravinskíjs á opnunartónleikum hljómsveitarinnar í haust undir stjórn aðalstjórnandans, SanttuMatias Rouvali sem aftur stóð á stjórnendapallinum þegar hún spilaði fiðlukonsert Sibeliusar í febrúar síðastliðnum. Í haust sem leið lék Bahari 2. fiðlukonsert James MacMillan með Sænsku kammersveitinni og var það frumflutningur í Svíþjóð. Undir lok síðasta árs kom hún í fyrsta sinn fram á japanskri grund og flutti fiðlukonsert Schönbergs með Sinfóníuhljómsveit Tókýóborgar undir stjórn Jonathan Nott. Verkefnaskrá Övu Bahari er einkar fjölskrúðug og sem dæmi þá hefur hún á undanförnum mánuðum, til viðbótar við fyrrnefnd verk, leikið fiðlukonsert Beethovens með Fílharmóníuhljómsveitinni í Helsinki, konsert Mendelssohns með Sinfóníuhljómsveit breska útvarpsins (BBC) í Skotlandi og fiðlukonsert Albans Berg með BBCþjóðarhljómsveitinni í Wales.
Ava Bahari hefur komið fram með mörgum öðrum þekktum hljómsveitum og stjórnendum. Þá er kammertónlist henni mjög hugleikin og hefur hún komið fram með nafntoguðum tónlistarmönnum á víðkunnum tónlistarhátíðum.
Vorið 2024 hlaut Ava Bahari Konzertexamen Diploma frá Hanns Eisler-tónlistarháskólanum í Berlín í framhaldi af BA- og meistaranámi undir handleiðslu prófessors Kolja Blacher. Árið 2021 lauk hún prófi frá Accademia Stauffer í Cremona á Ítalíu. Bahari leikur á Antonio Stradivarius fiðlu sem smíðuð var í Cremona árið 1694 og er í eigu Almennyttige Fond Anders Sveaas (ASAF).