EN

Daniil Trifonov

Píanóleikari

Rússinn Daniil Trifonov er einn dáðasti píanóleikari samtímans – „tvímælalaust undraverðasti ungi píanisti okkar tíma,“ skrifar gagnrýnandi stórblaðsins The Times um leik hans. Trifonov fæddist í Nizhny Novgorod árið 1991. Hann hóf píanónám fimm ára gamall og hélt sína fyrstu einleikstónleika einungis tveimur árum síðar. Hann nam í Moskvu og frá 2009‒2015 hjá Sergej Babayan í Cleveland í Bandaríkjunum.

Trifonov skaust upp á stjörnuhimininn þegar hann bar sigur úr býtum í Tsjajkovskíj-keppninni í Moskvu árið 2011, tvítugur að aldri, og hefur hann síðan komið í helstu tónleikasölum veraldar. Trifonov hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir list sína – árið 2018 hlaut hann til að mynda hin virtu Grammy-verðlaun fyrir einleiksplötu sína Transcendental, sem hafði að geyma hljóðritanir á verkum eftir Franz Liszt, auk þess sem tímaritin Gramophone og Musical America hafa útnefnt hann tónlistarmann ársins. Trifonov hefur hljóðritað fjölda platna fyrir þýska útgáfurisann Deutsche Grammophon en í fyrra kom út plata hans helguð tónlist Jóhanns Sebastíans Bachs, þar sem meðal annars er að finna Kunst der Fuge, eða Fúgulistina, auk ýmissa smáverka úr Nótnabók fyrir Önnu Magdalenu Bach.

Trifonov hefur komið fram með helstu hljómsveitum heims og hefur gegnt stöðu staðarlistamanns hjá Fílharmóníusveitunum í New York og Berlín. Á síðasta starfsári lék

Trifonov alla fimm píanókonserta Beethovens með átta mismunand hljómsveitum: Fílharmóníusveit New York, Sinfóníuhljómsveitinni í Cincinnatti, Sinfóníuhljómsveit New Jersey, Fílharmóníusveitinni í Munchen, Sinfóníuhljósmveit Mariinsky-leikhússins í Moskvu, Sinfóníuhljómsveit Champs-Élysées í París, Hátíðarhljómsveitinni í Búdapest og Sinfóníuhljómsveitinni í Toronto. Trifonov hefur einnig gefið sig að nýrri tónlist og frumflutti á síðasta starfsári nýjan píanókonsert eftir Mason Bates með Fílharmóníusveitinni í Fíladelfíu í Bandaríkjunum undir stjórn Yannick-Nézet-Séguin.

Daníil Trifonov hefur einu sinni áður komið fram á tónleikum í Hörpu, en hann var einleikari með Philharmonia-hljómsveitinni sem lék í Eldborg haustið 2015 undir stjórn Jakob Hrusa.