Gunnar Björn Jónsson
Einsöngvari
Gunnar Björn Jónsson hóf söngnám við Tónlistarskólann á Akureyri árið 2008 hjá Michael Clarke. Árið 2011 fluttist hann suður yfir heiðar og hóf nám hjá Kristjáni Jóhannssyni við Söngskóla Sigurðar Demetz þaðan sem hann útskrifaðist vorið 2014. Þá um haustið lá leið Gunnars til Mílanó á Ítalíu þar sem hann nam söng við Civica Scuola di Musica Claudio Abbado undir leiðsögn Vincenzo Manno og lauk náminu tveimur árum síðar.
Gunnar kemur reglulega fram sem einsöngvari hér heima og hefur sungið nokkur óperuhlutverk á Íslandi, í Þýskalandi og á Ítalíu. Af þeim má nefna Elvino í La sonnambula (Bellini), Alfredo í La traviata (Verdi), Edgardo í Lucia di Lammermoor (Donizetti), Roberto í Le Villi (Puccini) og Nemorino í Ástardrykknum (Donizetti). Á sumri komanda heldur hann til Ítalíu þar sem hann mun syngja hlutverk hertogans af Mantova í Rigoletto eftir Verdi. Gunnar kom í fyrsta sinn fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands síðastliðið haust þegar hann söng tenórhlutverkið í 9. sinfóníu Ludwigs van Beethoven á tónleikunum Klassíkin okkar.