EN

Íris Björk Gunnarsdóttir

Einsöngvari

Íris Björk hóf söngnám árið 2013 við Söngskóla Sigurðar Demetz. Þar var hún nemandi Valgerðar Guðnadóttur og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur og lauk framhaldsprófi vorið 2017. Í dag stundar hún nám við Listaháskóla Íslands undir leiðsögn Hönnu Dóru Sturludóttur, Kristins Sigmundssonar, Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur, Stuarts Skelton og Þóru Einarsdóttur.

Í byrjun árs 2018 hreppti Íris Björk fyrsta sæti í Vox Domini, söngkeppni á vegum Félags íslenskra söngkennara. Hún hlaut einnig titilinn ,,Rödd ársins 2018.“ Í október 2018 kom Íris Björk fram í Trouble in Tahiti eftir Leonard Bernstein á Óperudögum. Haustið 2019 hélt Íris Björk til Stokkhólms þar sem hún stundaði nám við Óperuháskólann í eitt ár. Þar söng hún meðal annars í kastala konungs og á nýárstónleikum Konunglegu óperunnar.
Í júní mun hún útskrifast með bakkalárgráðu frá Listaháskóla Íslands og heldur síðan til Noregs þar sem hún mun hefja meistaranám í óperusöng við Listaháskólann í Ósló.