EN
  • Karita Mattila

Karita Mattila

Söngkona

Karita Mattila er ein dáðasta sópransöngkona heims og tvímælalaust ein sú fremsta á Norðurlöndum. Hún hefur sungið við öll helstu óperuhús heims, m.a. undir stjórn Colin Davis, Bernard Haitink, Antonio Pappano og Simon Rattle. Hún hefur sungið Elektru á Salzburgarhátíðinni, Salome við Parísaróperuna og Metropolitan-óperuna í New York, í Don Carlos á Edinborgarhátíðinni og í Don Giovanni í Chicago. Nýverið söng hún í Jenufa í Metropolitan-óperunni og við Bæversku þjóðaróperuna. Hún hélt einnig einsöngstónleika í Wigmore Hall og við Vínaróperuna við góðar undirtektir og söng Sibelius ásamt Fílharmóníuhljómsveit Franska útvarpsins. Þá söng hún í Valkyrjunni eftir Wagner ásamt Jonasi Kaufmann og Lundúnasinfóníunni.

Karita Mattila lauk námi frá Sibeliusar-akademíunni árið 1983 og hélt áfram námi hjá Veru Rosza í Lundúnum. Hún hreppti fyrstu verðlaun í fyrstu Cardiff-söngkeppninni árið 1983 og debúteraði í Covent Garden tveimur árum seinna. Hún hefur hlotið tvenn Grammy-verðlaun, fyrir hljóðritun sína á Meistarasöngvurunum í Nürnberg árið 1998 og Jenufa árið 2004. Hún var tilnefnd til Laurence Olivier-verðlaunanna árið 2001 fyrir framúrskarandi afrek á óperusviðinu. Tímaritið Musical America útnefndi hana tónlistarmann ársins 2005 og sagði um hana að hún væri „rafmagnaðasta söng- og leikkona vorra daga, flytjandi sem blæs nýju lífi í gamalt listform og fær áheyrendur til að hrópa af æsingi“. BBC Music Magazine útnefndi Mattila eina af 20 bestu sópransöngkonum 20. aldar árið 2007. Þetta er í fyrsta sinn sem Karita Mattila syngur á Íslandi.