EN

Oddur Arnþór Jónsson

Einsöngvari

Oddur Arnþór Jónsson, barítón, hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2018 sem söngvari ársins fyrir hlutverk Michaels í Brothers, margverðlaunaðri óperu Daníels Bjarnasonar á Listahátíð 2018. Hann var útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2014 fyrir Rodrigo í Don Carlo, sem var frumraun hans í Íslensku óperunni.

Oddur lærði hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og Alexander Ashworth í Söngskólanum í Reykjavík og lauk þaðan burtfararprófi. Hann stundaði framhaldsnám í óperu- og ljóðasöng við Mozarteum-háskólann í Salzburg, Austurríki og hlaut Lilli Lehmann viðurkenninguna fyrir framúrskarandi meistarapróf frá Mozarteum Stiftung.

Síðastliðið ár hefur hann sungið barítónhlutverkið í Carmina Burana eftir Carl Orff með Sinfóníuhljómsveit Íslands, í Requiem eftir Mozart með Mótettukórnum, Lieder eines fahrenden Gesellen eftir Gustav Mahler í Fílharmóníunni í Berlín, aðalhlutverkið í Brothers eftir Daníel Bjarnason á Óperuhátíðinni í Kaupmannahöfn og Silvio í I Pagliacci í Óperuhúsinu í Ulm, Þýskalandi.

Við Íslensku óperuna hefur Oddur sungið titilhlutverkin í Don Giovanni og í Rakaranum frá Sevilla, Rodrigo í Don Carlo, Faðirinn í Hans og Grétu, Ned Keene í Peter Grimes, Greifann í Brúðkaupi Fígarós og Barone Douphol í La traviata. Önnur óperuhlutverk sem hann hefur sungið eru Wolfram í Tannhäuser og Kurwenal í Tristan und Isolde, Schaunard í La bohème, Oreste í Iphigènie en Tauride og Prins Yeletsky í Pique Dame.

Sem ljóðasöngvari hefur hann flutt Das Lied von der Erde eftir Gustav Mahler, Vetrarferðina og Schwanengesang eftir Schubert og haldið ljóðatónleika tónlistarhátíðum í Evrópu. Hann hefur sungið bassahlutverkin í helstu kórverkum Bachs, Messíasi og Solomon eftir Händel, Requiem og Krýningarmessunni eftir Mozart, Requiem eftir Faurè, Messa di gloria eftir Puccini, Petite Messe Solennelle eftir Rossini, Te Deum eftir Charpentier og Mysterium eftir Hafliða Hallgrímsson.

Oddur hefur hlotið fjölda viðurkenninga í alþjóðlegum keppnum.