EN

Mattheusarpassían

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
18. mar. 2027 » 19:00 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 4.100 - 12.700 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Johann Sebastian Bach Mattheusarpassía

  • hljómsveitarstjóri og guðspjallamaður

    Benedikt Kristjánsson

  • Einsöngvarar

    Anton Haupt Jesú og aríur
    Herdís Anna Jónasdóttir sópran
    Reginald Mobley kontratenór
    Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór
    Oddur Arnþór Jónsson barítón

  • Kórar

    Kór Langholtskirkju
    Mótettukórinn
    Skólakór Kársnesskóla

Það er ekki á hverjum degi að ráðist er í flutning á þrekvirki J. S. Bachs, Mattheusarpassíunni, en árið 2027 verða 300 ár liðin frá frumflutningi hennar. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur nú þetta stórvirki tónlistarsögunnar ásamt fjölda einsöngvara og kóra undir stjórn Benedikts Kristjánssonar. Benedikt er okkar fremsti túlkandi á söngtónlist Bachs og eftirsóttur sem slíkur um gervalla Evrópu. Hér leiðir hann hljómsveitina auk þess að syngja hlutverk guðspjallamannsins. 

Með Benedikt koma fram margir af okkar fremstu söngvurum ásamt einvalaliði erlendra einsöngvara. Þrír kórar taka þátt í flutningi þessa mikilfenglega verks, sem tekur um þrjár klukkustundir í flutningi. Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi getur látið framhjá sér fara.