EN

Reginald Mobley

Kontratenór

Bandaríski kontratenór-söngvarinn Reginald Mobley er þekktur fyrir túlkun sína á barokk-, klassískri- og nútímatónlist, og hefur hlotið Grammy-tilnefningu fyrir hljóðritanir sínar.

Sem eindregin málsvari fjölbreytileika í tónlist gegnir hann hlutverki listræns ráðgjafa í fjölbreytileika hjá Handel & Haydn Society, Apollo's Fire og Portland Baroque Orchestra. Hann hefur komið fram sem einsöngvari með helstu hljómsveitum heims, þar á meðal Fílharmóníusveitinni í New York, Sinfóníuhljómsveitinni í Chicago, Freiburger Barockorchester og Budapest Festival Orchestra. Fyrsta platan hans á Alpha Classics kom út árið 2023 og hlaut Opus Klassik-verðlaunin í flokknum „Classics Without Limits.“

Á starfsárinu 2026/27 kemur Reginald Mobley í fyrsta sinn fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Matteusarpassíu Bachs.