Anton Haupt
Barítón
Þýski barítóninn Anton Haupt er fæddur í Leipzig og sérhæfir sig í flutningi á tónlist frá barokk- og klassíska-tímabilinu. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í óperusöng frá HMT Leipzig. Hann vann önnur verðlaun í alþjóðlegu Bach-keppninni í Leipzig árið 2024 og fyrstu verðlaun í alþjóðlegu Bach-keppninni í Greifswald árið 2022. Hann er fastur þátttakandi í tónlistarlífi Leipzig og kemur reglulega fram með Gewandhaus-hljómsveitinni, Thomanerchor og Bachakademie Stuttgart undir stjórn Hans-Christoph Rademanns, auk þess sem hann hefur komið fram á helstu Bach-hátíðum Þýskalands.
Anton Haupt kemur í fyrsta sinn fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á starfsárinu 2026/27 þegar hann tekur þátt í flutningi á Matteusar-passíunni undir stjórn söngvarans og hljómsveitarstjórans Benedikts Kristjánssonar.
