EN

Ólafur Freyr Birkisson

Söngvari

Ólafur Freyr Birkisson bass-baritón nemur söng við Listaháskóla Íslands hjá Hönnu Dóru Sturludóttur, Kristni Sigmundssyni og Dísellu Lárusdóttur. Áður nam hann við Söngskólann í Reykjavík hjá Agli Árna Pálssyni og Hrönn Þráinsdóttur.

Ólafur hefur farið með ýmis hlutverk á sviði. Þar má helst nefna Dante í verðlaunaóperunni Ekkert er sorglegra en manneskjan eftir Friðrik Margrétar-Guðmundsson og Adolf Smára Unnarsson, Vigfús í ævintýraóperunni Mærþöll eftir Þórunni Guðmundsdóttur og Gísla í Raven‘s Kiss eftir Evan Fein og Þorvald Davíð Kristjánsson. Ólafur hefur komið fram sem einsöngvari með Kór Langholtskirkju, þ.á.m. í Requiem eftir Fauré og í Jóhannesarpassíu J.S. Bach undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar. Ólafur hefur einnig komið fram sem einsöngvari á tónleikum, t.a.m. hjá Sinfóníusveit áhugamanna, Kammerkór Seltjarnarneskirkju, Háskólakórnum og Ungfóníunni. Þá var Ólafur flytjandi á kammertónlistarhátíðinni Seiglu í Hörpu sumarið 2022.