Ólafur Kjartan Sigurðarson
Barítón
Barítónsöngvarinn Ólafur Kjartan Sigurðarson hefur átt glæsilegan feril undanfarinn aldarfjórðung og kemur reglulega fram í mörgum virtustu óperuhúsum heims við góðar undirtektir. Hann er ekki síst eftirsóttur sem Wagnertúlkandi og hefur til að mynda farið með hlutverk Alberichs í Niflungahringnum á Wagnerhátíðinni í Bayreuth og við La Scala óperuna í Mílanó og sungið Biterolf í Tannhäuser í Covent Garden í Lundúnum.
Ólafur Kjartan var staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands á síðasta starfsári og kom þá fram á þrennum tónleikum með hljómsveitinni, en síðast söng hann með hljómsveitinni í flutningi á áttundu sinfóníu Mahlers undir stjórn Evu Ollikainen á Listahátíð í Reykjavík vorið 2026.
