EN

Schola cantorum

Kammerkór

Kammerkórinn Schola cantorum hefur verið mikilvirkur flytjandi tónlistar undir stjórn Harðar Áskelssonar í 21 ár. Kórinn hefur á þessum árum komið víða við á akri tónlistarinnar en líklega verið hvað atkvæðamestur í flutningi tónlistar frá 20. og 21. öld og þar hefur frumflutningur íslenskra tónverka jafnan vegið þungt. Kórinn hefur jafnhliða sinnt gamalli fjölröddun endurreisnartímans sem hentar hljómi kórsins vel líkt og mikið af þeirri kórtónlist sem samin hefur verið síðasta árhundraðið. Samvinna Schola cantorum og Alþjóðlegu barokksveitarinnar í Hallgrímskirkju hefur verið mikilvæg í starfsemi kórsins og saman hafa þau flutt undir stjórn Harðar Áskelssonar verk á borð við Jólaóratóríuna eftir Bach, Ísrael í Egyptalandi eftir Händel og Requiem eftir André Campra.

Kórinn hefur einnig unnið með fjölmörgum öðrum listamönnum við tónleikahald, upptökur fyrir geislaplötur, sjónvarp og kvikmyndir og þar má nefna Björk, Sigur Rós, Wildbirds and Peacedrums, Hjaltalín, Tim Hecker, Ben Frost, Jóhann Jóhannsson og Kjartan Sveinsson. Schola cantorum hefur haldið tónleika víða um heim, nú síðast í Los Angeles í apríl 2017 þar sem kórinn söng á fernum tónleikum á Reykjavík Festival í Walt Disney Concert Hall. Schola cantorum hefur sent frá sér marga geisladiska. Fyrir tveimur árum var það diskurinn Meditatio sem kom út á vegum sænsku útgáfunnar BIS og hefur hlotið afar lofsamlega umfjöllun víða um heim í tímaritum og tónlistarnetmiðlum. Í desember á síðasta ári kom út hljómdiskurinn Sálmar á nýrri öld, þar syngur Schola cantorum 26 nýja sálma eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason. Schola cantorum hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2017 sem tónlistarflytjandi ársins.