Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir
Söngkona
Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir syngur allt frá barokki til nútímatónlistar, en hefur undanfarin ár skapað sér sérstöðu á vettvangi klassískrar tónlistar við frumflutning nýrra verka, bæði sem sólisti og sem meðlimur tónlistarhópsins KIMI ensemble; má þar nefna þrjár óperur, óratóríu og fjölda kammerverka eftir íslensk og erlend tónskáld.Þórgunnur einskorðar sig þó ekki við samtímatónlist og hefur nýverið tekið þátt í ýmsum nýstárlegum uppfærslum klassískra verka m.a. á vegum óperukompanísins Neugeboren opera og listahópsins Venteværelset sem hún stofnaði ásamt fleirum.
Þórgunnur lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Þórunnar Guðmundsdóttur og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur og síðar bakkalár- og meistaragráðu frá Konunglega danska tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn undir leiðsögn Hönnu Hjort og Marianne Rørholm, þar sem hún stundar nú nám í einsöngsdeild hjá Helene Gjerris. Þórgunnur er einnig með BA-próf í íslensku og mannfræði frá Háskóla Íslands.