EN

Liza Ferschtman leikur Bach

Föstudagsröð

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
14. nóv. 2025 » 18:00 » Föstudagur Norðurljós | Harpa 4.600 kr
Kaupa miða
  • Efnisskrá

    Johann Sebastian Bach Sónata nr. 2 í a-moll BWV 1003
    Johann Sebastian Bach Partita nr. 2 í d-moll BWV 1004

  • Einleikari

    Liza Ferschtman

Hollenski fiðluleikarinn Liza Ferschtman er þekkt fyrir ástríðufullan flutning og góða tengingu við áheyrendur. Hún hefur hlotið mikla athygli og viðurkenningu fyrir einstaka túlkun sína á einleikssónötum Johanns Sebastians Bach og hér tekst hún á við tvö þessara lykilverka barokktímans. Sónötur og partítur meistarans fyrir einleiksfiðlu eru sex talsins og þykja meðal hápunkta fiðlubókmennta í vestrænni tónlistarsögu. Þær voru að öllum líkindum samdar nálægt 1720, þegar Bach var í þjónustu prinsins af Anhalt-Köthen. Þessi ár einkenndust af miklum afköstum Bachs á sviði hljóðfæratónlistar en þá fæddust t.d. svíturnar sex fyrir einleiksselló, fjórar hljómsveitarsvítur og Brandenburgarkonsertarnir sex.

Í verkunum birtist fiðlan okkur sem fjölradda hljóðfæri og hinn þéttofni vefur Bachs gerir oft gríðarlegar kröfur til hljóðfæraleikarans. Lokaþáttur partítunnar sem hér hljómar, Sjakonna, er af mörgum álitin ein mikilfenglegasta tónsmíð sögunnar. Þýska tónskáldið Johannes Brahms skrifaði m.a. um verkið í bréfi til Clöru Schumann: „Á einn nótnastreng, fyrir lítið hljóðfæri ritar maðurinn [Bach] heila veröld af hinum dýpstu hugsunum og sterkustu tilfinningum.“