EN

Maxímús Músíkús á Menningarnótt

Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
24. ágú. 2019 » 15:00 - 16:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa Aðgangur ókeypis
  • Efnisskrá

    Maurice Ravel Bóleró
    Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 5, fyrsti þáttur
    Aaron Copland Hátíðargjall fyrir hinn almenna borgara
    Sigvaldi Kaldalóns Á Sprengisandi
    Hallfríður Ólafsdóttir Lagið hans Maxa

  • Hljómsveitarstjóri

    Bjarni Frímann Bjarnason

  • Sögumaður

    Valur Freyr Einarsson

  • SAGA OG MYNDIR

    Hallfríður Ólafsdóttir og
    Þórarinn Már Baldursson

Á fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Menningarnótt verður boðið upp á tónlistarævintýri um Maxímús Músíkús þar sem músin ástsæla villist inn á æfingu hjá sinfóníuhljómsveit. Þar kynnist hún tónlistinni af eigin raun og leiðir hlustendur með sér inn í heillandi hljóðheim sinfóníuhljómsveitarinnar. Tónlistin sem hljómar á tónleikunum er úr ýmsum áttum og má þar nefna Bolero eftir Maurice Ravel og Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns. Ævintýrið um Maxa hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun og verið þýtt á fjölda tungumála. Verndari verkefnisins er Vladimir Ashkenazy, aðalheiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar.

Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari er höfundur tónlistarævintýranna um Maxímús Músíkús og Þórarinn Már Baldursson víóluleikari myndskreytir sögurnar. Hallfríður og Þórarinn eru bæði hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Á Menningarnótt í Reykjavík býður Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á tvenna tónleika, fjölskyldutónleika kl. 15 og maraþontónleika 17. 

Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir án hlés. Ókeypis er á tónleikana og hægt að nálgast miða frá kl. 11 á tónleikadegi hér á vef hljómsveitarinnar og í miðasölu Hörpu.