EN

Mugison og Sinfó

Á Iceland Airwaves

Dagsetning Staðsetning Verð
6. nóv. 2025 » 19:00 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 9.900 - 19.900 kr.
Miðasala hefst 2. maí kl. 10:00
  • Efnisskrá

    Tónlist Mugison í nýjum útsetningum

  • Flytjendur

    Mugison
    Sinfóníuhljómsveit Íslands

  • Hljómsveitarstjóri

    Bjarni Frímann Bjarnason

  • útsetjarar

    Þórður Magnússon
    Pétur Ben
    Rósa Sveinsdóttir
    Sigrún Harðardóttir
    Úlfur Eldjárn
    Þórdís Gerður

Mugison er einn af okkar ástsælustu tónlistarmönnum og hefur samið og gefið út margar af þekktustu perlum síðari ára. Nú stígur hann í fyrsta sinn á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og fer ásamt henni í gegnum tónlistarferilinn sem litast af tilfinningum, dýpt, óvæntum beygjum og einstökum hljóðheimi.

Þetta verða einstakir tónleikar þar sem tónlist listamannsins fær nýjan lit í nýjum útsetningum sem gerðar hafa verið sérstaklega fyrir tilefnið. Tónleikar sem verða líklega aldrei endurteknir.

Ekki sleppa þessu einstaka tækifæri, að upplifa fullskipaða Sinfóníuhljómsveit Íslands með um 70 hljóðfæraleikurum og Mugison í miðjunni á Eldborgarsviði Hörpu.

Viðburðurinn er hluti af Iceland Airwaves 2025 sem sérstakur Partner Event. Iceland Airwaves miðahafar fá forgang og afslátt, en tónleikarnir eru opnir öllum.

Með tónleikunum heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands áfram samstarfi sínu við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. Áður hefur Sinfó meðal annars tekið þátt í Iceland Airwaves á tónleikum með John Grant, Jóhanni Jóhannssyni, Emilíönu Torrini, Ólafi Arnalds og nú síðast Ásgeiri Trausta.

UM ICELAND AIRWAVES PARTNER EVENTS
Iceland Airwaves Partner Events eru viðburðir sem yfirleitt krefjast sérstakra miða en eiga sér stað á meðan og í samstarfi við Iceland Airwaves hátíðina. Allir geta keypt miða á þessa viðburði en miðahafar Iceland Airwaves greiða ávallt lægra miðaverð og/eða hafa forgang að miðasölu (miðahafar finna afsláttartengla í miðastaðfestingum sínum og sérstakur póstur er sendur á alla miðahafa þegar forsölur eiga sér stað). Ávallt má finna upptalningu allra Iceland Airwaves Partner Events og annara sérstakra viðburða tengdum Iceland Airwaves á icelandairwaves.is/special

ALMENN MIÐASALA HEFST 2. MAÍ KL. 10.00
FORSALA FYRIR ÁSKRIFENDUR SINFÓNÍUNNAR OG IA MIÐAHAFA FER FRAM 30. APRÍL KL. 10.00*
ÁSKRIFENDUR OG ALMENNIR IA MIÐAHAFAR FÁ 10% AFSLÁTT