EN

Náttfatapartý Sinfóníunnar

Litli tónsprotinn

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
15. feb. 2025 » 14:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 3.000 - 3.700 kr.
Kaupa miða
  • Efnisskrá

    Wolfgang Amadeus Mozart Eine kleine Nachtmusik (Allegro)
    Veigar Margeirsson Rætur: Kveðja — Sofðu unga ástin mín
    Mikhail Glinka Spánskur forleikur nr. 2 (Minning um sumarnótt í Madríd)
    Frederich Chopin Etýða í E-dúr nr. 3 fyrir hljómsveit
    Alexandre Desplat Harry Potter og dauðadjásnin, svíta
    Alan Menken Arabískar nætur úr Aladdin
    Ray Parker yngri Draugabanar

  • Hljómsveitarstjóri

    Micah Gleason

  • Einleikarar

    Sigrún Eðvaldsdóttir
    Sigurður Flosason

  • Kynnir

    Trúðurinn Barbara

  • Dansarar

    Dansarar úr Listdansskóla Íslands

Komum okkur vel fyrir í náttfatapartýi Sinfóníunnar þar sem falleg næturtónlist og ljúfar vögguvísur hljóma. Hvað er unaðslegra en að lygna aftur augunum og svífa á vit drauma undir slíkri tónlist? Í öllum náttfatapartýjum þarf góða draugasögu, eitthvað til að halda fólki vakandi,allavega í smástund. Slíkir spennutónar slæðast með á þessum tónleikum, en einnig tónlist sem kveður niður allan draugagang svo sem titillag myndarinnar Ghostbusters sem fær alla móra og skottur sem leynast í Hörpu til að flýta sér í felur. Sigurður Flosason saxófónleikari vaggar okkur í svefn með laginu Sofðu unga ástin mín og Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari fer með okkur í seiðmagnað ferðalag til Austurlanda.

Við hvetjum tónleikagesti að sjálfsögðu til að mæta í náttfötum og með uppáhaldstuskudýrið í þetta skemmtilega náttfatapartý.

Strengjasveitir úr Tónlistarskóla Akraness leika í Hörpuhorni á undan tónleikum.

*Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir, án hlés.