EN

Opið hús hjá Sinfó

Menningarnótt

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
22. ágú. 2026 » 15:00 - 16:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 0 kr.
22. ágú. 2026 » 17:00 - 18:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 0 kr.
Aðgangur ókeypis
  • Efnisskrá

    Benjamin Britten Dögun úr 4 Sjávarmyndum op. 33a
    Anna Clyne Masquerade / Grímuleikur
    Claude Debussy Clair de lune
    Burt Howard Fly me to the moon (úts. Eiríkur Rafn Stefánsson)
    John Williams Júragarðurinn, meginstef
    George Harrison Here Comes the Sun (úts. Þórður Magnússon)
    Edvard Grieg Morgunn úr Svítu úr Pétri Gaut nr. 1

  • Hljómsveitarstjóri

    Rolf Verbeek

  • Kynnir

    Stjörnu-Sævar / Sævar Helgi Bragason

Á Menningarnótt í Reykjavík býður Sinfóníuhljómsveit Íslands gestum og gangandi á Sólmyrkvahátíð í Eldborg í fylgd með okkar ástsæla Sævari Helga Bragasyni eða Stjörnu-Sævari. Á tónleikunum förum við í ferðalag til sólarinnar og tunglsins og njótum glæsilegrar tónlistar um leið. Við skoðum hvernig sólarljósið verður til, hvernig sólin fæddist og hvernig hún býr til norðurljósin. Síðan höldum við til tunglsins, skoðum tignarlegan dans mánans um jörðina og hvernig tunglið er að hægja á snúningi jarðar. Hver veit nema sól- og tunglmyrkvar komi við sögu? Á tónleikunum verða einnig gerðar einfaldar sýnitilraunir sem dýpka skilning okkar á sólkerfinu. Verið öll hjartanlega velkomin í veislu fyrir augu og eyru með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Menningarnótt í Reykjavík. 

Aðgangur á tónleikana er ókeypis og hægt er að sækja miða á sinfonia.is og í miðasölu Hörpu á tónleikadegi frá kl. 10:00.