EN

Sæunn og Víkingur

Myrkir músíkdagar

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
25. jan. 2018 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.600 - 4.300 kr.

Íslensk samtímatónlist hefur verið í brennidepli víða um heim undanfarin misseri. Í febrúar 2017 var haldin Íslandsvika í hinni nývígðu tónleikahöll Elbphilharmonie í Hamborg og í apríl hélt Fílharmóníuhljómsveitin í Los Angeles 10 daga hátíð sem helguð var íslenskri tónlist. Í báðum tilvikum voru pöntuð ný íslensk tónverk og á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum hljóma þau í fyrsta sinn hér á landi.

Glæsilegur píanókonsert Hauks Tómassonar hlaut frábærar viðtökur bæði í Hamborg og Los Angeles þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson flutti hann undir stjórn Esa-Pekka Salonen. Páll Ragnar Pálsson samdi sellókonsert sinn innblásinn af lýsingu í skáldsögunni Stóra skjálfta eftir Auði Jónsdóttur, en verkið samdi hann fyrir Sæunni Þorsteinsdóttur sem er einn okkar fremsti sellóleikari.

Stjórnandi tónleikanna er Daníel Bjarnason, en hann var einmitt listrænn stjórnandi Reykjavíkurhátíðarinnar í Los Angeles ásamt Esa-Pekka Salonen og stýrði þar frumflutningi á verkum Þuríðar og Páls Ragnars.

Sækja tónleikaskrá