Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
---|---|---|---|---|
10. nóv. 2022 » 20:00 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 2.700 - 7.700 kr. | ||
Horfa |
-
Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart Töfraflautan, forleikur
John Williams Stef uglunnar Hedwig (úr Harry Potter)
Pablo de Sarasate Sígaunaljóð
Paul Dukas Lærisveinn galdrameistarans
Ígor Stravinskíj Eldfuglinn (hluti)
-
Hljómsveitarstjóri
-
Einleikari
-
Kynnir
Halla Oddný Magnúsdóttir
Galdrar og töfrar eru í aðalhlutverki á þessum klukkustundarlöngu tónleikum í Grænu röðinni hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, en þeir hefjast á forleiknum að óperu Mozarts, Töfraflautunni, áður en leiðin liggur í ævintýraheim J.K. Rowling en tónlistin leikur stórt hlutverk í kvikmyndunum um Harry PotterTM.
Þá leikur Páll Palomares, leiðari 2. fiðlu Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hið vinsæla og töfrum slungna Sígaunaljóð spænska tónskáldsins Pablos de Sarasate en meðal þekktustu stefja verksins er laglínan sem Íslendingar þekkja vel undir nafninu Til eru fræ. Lærisveinn galdrameistarans eftir Paul Dukas byggir á kvæði Johanns Wolfgangs von Goethe en margir þekkja bæði tónlistina og söguna af lærisveininum seinheppna úr Disney-teiknimyndinni Fantasíu. Tónleikunum lýkur svo á lokakaflanum úrævintýrinu um Eldfuglinn eftir Stravinskíj.
Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir án hlés og er einnig sjónvarpað beint á RÚV.
Upphaflega átti Sigrún Eðvaldsdóttir konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands að koma fram sem einleikari á tónleikunum. Páll Palomares hleypur í skarðið fyrir Sigrúnu sem þurfti frá að hverfa vegna meiðsla.