Dagsetning | Staðsetning | Verð |
---|---|---|
7. mar. 2024 » 19:30 » Fimmtudagur | Íþróttahúsið í Stykkishólmi |
-
Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart Brúðkaup Fígarós, forleikur
Atli Heimir Sveinsson Kvæðið um fuglana úts. Hrafnkell Orri Egilsson
Sigvaldi Kaldalóns Ave María úts. Hrafnkell Orri Egilsson
Valentina Kay Sofðu vært Ellen
Joseph Haydn Konsert fyrir selló og hljómsveit nr. 1 í C-dúr
Ludwig van Beethoven Sinfónía nr 7 í A-dúr
-
Hljómsveitarstjóri
-
Einleikari
-
Sameinaðir kórar á Snæfellsnesi
Karlakórinn Heiðbjört
Karlakórinn Kári
Kirkjukór Grundarfjarðarkirkju
Kirkjukór Ólafsvíkur
Kór Ingjaldshólskirkju
Kór Stykkishólmskirkju
Kvennasveitin Skaði
Dagskrá tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Stykkishólmi skartar þremur verkum eftir höfuðtónskáld klassíska tímans en auk þess hljóma þrjú hugljúf íslensk lög í flutningi hljómsveitarinnar og sameinaðra kóra á Snæfellsnesi. Tónleikarnir hefjast með fjörugum forleik Mozarts að óperunni Brúðkaup Fígarós og þá stígur kórinn á svið og syngur með hljómsveitinni. Síðan hljómar hinn ljúfi og glaðlegi C-dúr sellókonsert Josephs Haydn þar sem Steiney Sigurðardóttir sólósellóleikari fer með einleikshlutverkið.
Eftir hlé leikur hljómsveitin 7. sinfóníu Beethovens sem er full af fegurð, lífsgleði og krafti. Stjórnandi tónleikanna er aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Eva Ollikainen.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Tónleikarnir eru um 2 tímar með hléi. Kvenfélagið Hringurinn selur veitingar í hléi.