EN

Úr nýja heiminum

Eva stjórnar sinfónía nr. 9 eftir Dvořák ásamt verki eftir Juliu Perry

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
4. mar. 2021 » 20:00 - 21:00 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.400 – 5.700 kr.

Á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands hljóma tvö merkileg verk sem tengjast nýja heiminum, hvort með sínum hætti.

Dvořák var um þriggja ára skeið búsettur í Bandaríkjunum og sótti þá innblástur í tónlist heimamanna. Sinfónían „Úr nýja heiminum“ er lykilverk í þjóðlegri sinfóníusmíði 19. aldar, hrífandi samruni gamla heimsins og hins nýja, og býr yfir ljóðrænu og krafti.

Hin bandaríska Julia Perry er meðal þeirra tónskálda 20. aldar sem gleymdust í tímans rás þrátt fyrir að hafa samið sérlega áhugaverða tónlist. Hún lærði við Juilliard-tónlistarskólann um 1950 og vakti allmikla athygli á sinni tíð þrátt fyrir að tvennt hamlaði tónsmíðaferli hennar: Hún var svört kona. Líflegur konsertforleikur hennar hefur hljómað víða síðustu ár og hvarvetna vakið mikla hrifningu.

Hljómsveitarstjóri er Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Tónleikunum er útvarpað beint á Rás 1.

Takmarkað sætaframboð á tónleikana
Í samræmi við sóttvarnarlög er sætaframboð á tónleikana takmarkað við 200 tónleikagesti í fjórum sóttvarnarhólfum í Eldborg. Í það minnsta eitt autt sæti er á milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Gestum ber skylda að vera með grímu á tónleikunum sem eru um klukkustundarlangir án hlés. Við biðjum gesti að gæta vel að sóttvörnum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er í Hörpu. Stöndum saman, við erum öll almannavarnir.