Dagsetning | Staðsetning | Verð | |
---|---|---|---|
27. maí 2020 » 18:30 - 22:30 » Miðvikudagur | Eldborg | Harpa | 5.500 - 11.900 kr. | Frestað |
29. maí 2020 » 18:30 - 22:30 » Föstudagur | Eldborg | Harpa | 5.500 - 11.900 kr. | Frestað |
-
Efnisskrá
Richard Wagner Valkyrjan (Die Walküre)
-
Hljómsveitarstjóri
Alexander Vedernikov
-
Leikstjórn
Julia Burbach og Tal Rosner
-
Vídeóhönnun og útlit
Tal Rosner
-
Hlutverk
Christine Goerke Brünnhilde
Christopher Ventris Siegmund
Jamie Barton Fricka
Claire Rutter Sieglinde
Ólafur Kjartan Sigurðarson Wotan
Štefan Kocán Hunding
Lilja Guðmundsdóttir Helmwige
Sigrún Pálmadóttir Gerhilde
Margrét Hrafnsdóttir Ortlinde
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir Waltraute
Agnes Thorsteins Siegrune
Guja Sandholt Roβweiβe
Hildigunnur Einarsdóttir Grimgerde
Svanhildur Rósa Pálmadóttir Schwertleite
Tónleikunum hefur verið frestað til næsta starfsárs vegna samkomubanns. Nánar
Niflungahringur Richards Wagner er án nokkurs vafa ein metnaðarfyllsta ópera sem fyrirfinnst í tónlistarsögunni. Fjórar óperur mynda verkið og við smíði sögunnar sótti Wagner ekki aðeins efni í hið þýska Niflungaljóð, heldur einnig Eddukvæði, Snorra-Eddu og Völsunga sögu sem hann átti í fórum sínum í þýskri þýðingu. Hann vann að verkinu í um aldarfjórðung og hér fékk gáfa hans bæði sem tónskáld og textahöfundur að njóta sín til fulls.
Efnisþráður Valkyrjunnar er að miklu leyti sóttur í Völsunga sögu. Fárviðri geisar og Siegmund leitar skjóls í húsi Sieglinde og manns hennar, Hundings. Þau Sieglinde fella hugi saman og valkyrjan Brynhildur, dóttir Óðins, óhlýðnast föður sínum með því að liðsinna Sigmundi þar sem hann heyr einvígi við Hunding. Óðinn refsar henni með því að svipta hana guðdómleikanum, breytir henni í mennska konu sem skal liggja sofandi á bjarginu umvafin vafurlogum og ekki vakna fyrr en mikil hetja fær sigrast á logunum og vakið hana með kossi.
Þessi magnaða ópera er eitt af helstu meistaraverkum tónlistar á 19. öld og Valkyrjureiðin fræga er flestum kunn. Nú hljómar Valkyrjan í fyrsta sinn í heild á Íslandi og þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2002 sem ópera Wagners er sýnd hér í fullri lengd. Sópransöngkonan Christine Goerke fer með hlutverk Brynhildar, en hún hefur meðal annars sungið hlutverkið við Metropolitan-óperuna. Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með hlutverk Wotans, og glæsilegur hópur íslenskra söngkvenna fer með hlutverk valkyrjanna.
Hljómsveitinni stjórnar Alexander Vedernikov sem í fyrra tók við stöðu aðalstjórnanda við Konunglegu dönsku óperuna í Kaupmannahöfn. Leikstjórinn, Julia Burbach, er fastráðin við Covent Garden í Lundúnum; vídeólistamaðurinn Tal Rosner hefur meðal annars unnið til BAFTA-verðlauna fyrir list sína, en hann hefur m.a. starfað við National Theatre í Lundúnum og Lincoln Center í New York.
Valkyrjan er samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Íslensku óperunnar og Listahátíðar í Reykjavík í samvinnu við Opéra National de Bordeaux.