EN

1

Tónskáldið er dautt! - 4.- 7. bekkur

Grunnskólatónleikar fyrir 4. -7. bekk í Eldborg

Bókunartímabilinu er lokið.

Dagsetningar í boði:

Þriðjudagur - 20. september 2022 - kl. 09:30
Þriðjudagur - 20. september 2022 - kl. 11:00
Miðvikudagur - 21. september 2022 - kl. 09:30
Miðvikudagur - 21. september 2022 - kl. 11:00

Nathanaël Iselin hljómsveitarstjóri
Bragi Valdimar Skúlason sögumaður
Frank Aarnink einleikari

Jim Parker: Titillag úr Midsomer Murders
Nathaniel Stookey: Tónskáldið er dautt!

Um tónleikana:
Hefur þú heyrt það nýjasta frá Sinfó? — Tónskáldið er dautt! Hafir þú heyrt hljómsveit leika listir sínar þá veistu að hljóðfærin hafa augljóslega eitthvað á samviskunni. Hvar nákvæmlega voru víólurnar umrætt kvöld? Varð einhver var við hörpuna? Eru skýringar trompettsins ekki ögn of kæruleysislegar? Í þessari flóknu morðgátu virðast allir hafa ástæðu, höggþétta fjarvistarsönnun — auk þess sem nánast allir gátu nýtt færið, hljóðfærið. En það breytir því ekki, að tónskáldið er dautt!

Þú gætir leyst gátuna upp á þitt einsdæmi. Taktu þátt í yfirheyrslunum yfir hinum grunuðu og leggðu við hlustir. Þú gætir heyrt nákvæmlega hvað gerðist þetta örlaga– og raunar almennt lagaríka kvöld.

Tónleikarnir eru u.þ.b. 40 mínútna langir.