EN

Vísnabókin – Skólatónleikar á Akranesi

Sinfóníuhljómsveit Íslands heimsækir Akranes og leikur lög úr Vísnabókinni á skólatónleikum. Hjördís Ástráðsdóttir, fræðslustjóri, hjordis@sinfonia.is veitir frekari upplýsingar. Fullbókað er á tónleikana.


 

Föstudagur - 15. maí 2026 - kl. 13:00

Vísnabókin er klassísk gersemi sem fylgt hefur mörgum börnum og fullorðnum allt frá því að hún kom fyrst út árið 1946. Í bókinni er að finna úrval vísna og kvæða að ógleymdum myndskreytingum Halldórs Péturssonar. Á þessum fjölskyldutónleikum má heyra valin lög og syrpur í nýjum hljómsveitarútsetningum Hrafnkels Orra Egilssonar.

Hver kannast ekki við lög á borð við Siggi var úti, Ég á lítinn skrýtinn skugga, Fyrr var oft í koti kátt, Hann Tumi fer á fætur og Komdu kisa mín. Það eru leikararnir og söngvararnir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson og Hallgrímur Ólafsson sem koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Barnakórar úr héraði taka þátt í tónlistarflutningnum. Teikningum Halldórs verður varpað upp á stóra tjaldið í Eldborg á meðan á tónleikunum stendur.

Hljómsveitarstjóri
Hjörtur Páll Eggertsson

Sögumenn og söngvarar
Þórunn Arna Kristjánsdóttir
Hallgrímur Ólafsson
Sigurður Þór Óskarsson

Barnakórar úr héraði taka þátt í tónlistarflutningnum. 

Myndskreytingar
Halldór Pétursson

 

Hjördís Ástráðsdóttir, fræðslustjóri, hjordis@sinfonia.is veitir upplýsingar um tónleikana.