Lalli töframaður og Sinfónían, þróunarverkefni – elstu börn leikskóla
Fyrir elstu börn leikskóla
Dagsetningar í boði:
Þriðjudagur - 26. nóvember 2024 - kl. 14:00
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Richard Schwennicke, hljómsveitarstjóri
Lalli töframaður
Úrval klassískra laga og kvikmyndatónlistar
Um tónleikana
Á þessum tónleikum töfrar Lalli Sinfóníuhljómsveitina upp úr skónum með aðstoð tónleikagesta sem eru beðnir um að senda inn hugmyndir og svara nokkrum spurningum að loknum tónleikum. Þannig gerum við hljómsveitinni og Lalla kleift að bjóða upp á tónleika sem eru áhugaverðir og spennandi fyrir öll töfrabörn. Gestir sitja á töfrateppum á gólfi salarins en hægt að að fá stóla fyrir þá sem eiga erfitt með að sitja á gólfinu.
Lengd tónleikanna er u.þ.b. 30 mínútur
Tónleikarnir eru í Norðurljósum