EN

Laus staða Listræns ráðgjafa

Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) auglýsir laust til umsóknar starf listræns ráðgjafa í 50-75% starfshlutfall (umsemjanlegt). Við leitum að skapandi, skipulögðum og öflugum einstaklingi með breiða þekkingu og ástríðu fyrir tónlist og tónlistarlífi á Íslandi sem og erlendis.

Umsóknarfrestur er til og með 24. maí nk.

Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) auglýsir laust til umsóknar starf listræns ráðgjafa í 50-75% starfshlutfall (umsemjanlegt). Við leitum að skapandi, skipulögðum og öflugum einstaklingi með breiða þekkingu og ástríðu fyrir tónlist og tónlistarlífi á Íslandi sem og erlendis.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á mótun og framkvæmd listrænnar stefnu SÍ.
  • Vinnur tillögur að dagskrá hljómsveitarinnar með listrænum stjórnanda og framkvæmdateymi SÍ.
  • Listræn ráðgjöf við listrænan stjórnanda, gestalistamenn og framkvæmdateymi.
  • Formennska í verkefnavalsnefnd hljómsveitarinnar.
  • Aðkoma að samningagerð við listafólk.
  • Yfirferð á raddskrám tónverka.
  • Ritun texta um verkefni hljómsveitarinnar.
  • Aðkoma að árlegri starfsáætlun og vinnuáætlun.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Yfirgripsmikil tónlistarþekking með áherslu á sígilda tónlist og samtímatónlist.
  • Yfirgripsmikil þekking á starfsemi sinfóníuhljómsveita, hljómsveitarstjórum og einleikurum/einsöngvurum á alþjóðlegum vettvangi.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og unun af teymisvinnu.
  • Sjálfstæði, drifkraftur og skipulagshæfni í starfi.
  • Þekking á starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er kostur.

Umsóknarfrestur er til og með 24. maí nk.

Sinfóníuhljómsveit Íslands áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.

Nánari upplýsingar veitir Inga Steinunn Arnardóttir, inga@hagvangur.is. Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi skulu fylltar út á hagvangur.is

Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í yfir 75 ár og hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum. Hljómsveitin hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hún heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum, en á einnig samstarf við listafólk úr ólíkum greinum tónlistar. Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, er heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Starfsmannafjöldi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er rúmlega 100 manns. Nánari upplýsingar á sinfonia.is.