Staða almenns fiðluleikara í fyrstu fiðlu
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir eftir umsóknum um stöðu almenns fiðluleikara í fyrstu fiðlu.
Umsóknarfrestur er til 20. október 2026.
Niðurstöður fyrstu umferðar verða kynntar þátttakendum 23. október 2026.
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir eftir umsóknum um stöðu almenns fiðluleikara í fyrstu fiðlu
Fyrsta umferð hæfnisprófs (forumferð) fer fram með skilum á myndbandsupptöku.
Umsóknarfrestur er til 20. október 2026 og niðurstöður fyrstu umferðar verða kynntar þátttakendum 23. október 2026.
Síðari umferðir hæfnisprófs fara fram í Hörpu, Reykjavík, 8. desember 2026 og hefjast kl. 9:00.
Umsóknir skulu sendar með tölvupósti til mannauðsstjóra á starf@sinfonia.is og skulu innihalda:
• Ferilskrá
• Afrit af viðeigandi prófskírteinum
• Hlekk á myndbandsupptöku fyrir fyrstu umferð
Í fyrstu umferð (forumferð á myndbandi) skulu umsækjendur leika eftirfarandi:
- Mozart 1. kafli, framsaga með kadensu.
- Strauss – Don Juan.
- Schumann – Scherzo úr sinfóníu númer 2. Taktur 1-54.
- Prokofiev – Classical symphony 4. kafli, finale. Byrjun til 8. taktar eftir C
Nótur fyrstu umferðar má nálgast hér.
Í síðari umferðum sem fram fara í Hörpu, Reykjavík, 8. desember 2026 skulu umsækjendur leika:
Einleiksverk:
- Rómantískur konsert með kadensu
- Fyrsti kafli með kadensu úr einum af eftirtöldum konsertum:
- Brahms, Beethoven, Tchaikovsky, Sibelius eða Dvorák.
Hljómsveitarpartar:
Upplýsingar um hljómsveitarparta má nálgast hér.
Kröfur til upptöku
• Flutningur skal vera án undirleiks og í hljómsveitarstillingu.
• Myndbandið skal tekið upp í einni samfelldri upptöku, í framangreindri röð og vera óklippt.
• Umsækjandi skal sjást greinilega allan tímann.
• Stutt hlé til að stilla hljóðfæri eða laga búnað eru leyfð, en myndavélin skal vera í gangi allan tímann.
• Myndbandsupptaka í snjallsíma er leyfileg.
• Hljóðgæði skulu vera skýr og góð. Ef ytri hljóðnemi er notaður skal staðsetja hann rétt.
• Upptakan skal vera í láréttri mynd, þannig að bæði hljóðfæraleikari og hljóðfærið sjáist allan tímann.
Leiðbeiningar um innsendingu á myndbandsupptöku
- Hlaðið myndbandinu upp á YouTube sem „óskráðu“ (unlisted) myndbandi.
- Afritið hlekkinn í umsókn.
- Aðrar aðferðir við innsendingu verða ekki teknar gildar.
Um starfið
Um er að ræða 100% starf almenns hljóðfæraleikara í fyrstu fiðlu. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Aðilar utan EES-svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.
Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Barbara Hannigan er aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is, og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is.
