Uppfærslumaður Horndeildar
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar stöðu uppfærslumanns í horndeild.
Hæfnispróf fer fram 19. október 2026 í Hörpu og hefst kl. 13:00.
Umsóknarfrestur er til 5. október 2026.
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar stöðu uppfærslumanns í horndeild.
Hæfnispróf fer fram 19. október 2026 í Hörpu og hefst kl. 13:00.
Umsóknarfrestur er til 5. október 2026.
Ekki er þörf á að fylla út umsóknareyðublað, nægilegt er að sækja um með því að senda tölvupóst, ásamt ferilskrá og afritum af prófskírteinum, til mannauðsstjóra á tölvupóstfangið starf@sinfonia.is.
Einleiksverk
1. W. A. Mozart hornkonsert nr. 4, K495, fyrsti kafli með kadensu.
2. Richard Strauss hornkonsert nr. 1 Op. 11, fyrsti kafli.
Hljómsveitarpartar
Hljómsveitarparta, þar sem hljómsveitarstaðir hafa verið tilgreindir sérstaklega, má nálgast hér.
- Beethoven - Symphony nr. 7 mov.1
- Brahms - Symphony nr. 2 mov. 1
- Brahms - Piano conc. nr. 1 mov. 1
- Mendelssohn - Symphony nr. 3 mov. 2
- Bruckner - Symphony nr. 4 mov. 1
- Wagner - Götterdämmerung
- Wagner - Lohengrin
- R. Strauss - Till Eulenspiegel
- R. Strauss - Ein Heldenleben
- R. Strauss - Don Juan
- Tchaikovsky - Symphony nr. 5 mov. 2
- Shostakovich - Symphony nr. 5 mov.1
- Ravel - Píanókonsert in G major
Um starfið
Um er að ræða fullt starf uppfærslumanns í horndeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands en samtals eru fimm hornleikarar í deildinni. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Umsækjendur utan EES-svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.
Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið mjög góða dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri tónleika hljómsveitarinnar. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Barbara Hannigan er aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is.
