EN

Barnastund Sinfóníunnar

Opið hús á 75 ára afmæli

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
1. mar. 2025 » 11:30 - 12:00 » Laugardagur Flói | Harpa Aðgangur ókeypis
1. mar. 2025 » 12:45 - 13:15 » Laugardagur Flói | Harpa Aðgangur ókeypis
  • Efnisskrá

    Fjölbreytt og skemmtileg tónlist

  • Hljómsveitarstjóri

    Ross Jamie Collins

  • Fram kemur

    Lalli Töframaður

Á opnum fjölskyldudegi í tilefni af 75 ára afmæli Sinfóníuhljómsveit Íslands býður hljómsveitin upp á tvær Barnastundir með Lalla töframanni. Leikin verður fjölbreytt og skemmtileg tónlist og Lalli töfrar börnin upp úr skónum. Hljómsveitin flytur lög á borð við Smile eftir Chaplin,  In Summer úr söngleiknum Frozen eftir Anderson-Lopez og Lærisvein galdrameistarans eftir Dukas. Dagskráin er um það bil hálftímalöng og er skemmtileg samverustund fyrir yngstu börnin. Hljómsveitarstjóri er Ross Jamie Collins. 

Gott er að koma með púða til að sitja á fyrir þau minnstu sem vilja sitja nálægt hljómsveitinni.
Barnastundirnar fara fram kl. 11:30-12:00 og 12:45 –13:15 í Flóa í Hörpu.

Frítt inn og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Skoða alla dagskrá opna fjölskyldudagsins með því að smella hér.