EN

Barokkveisla

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
31. okt. 2024 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.900 - 9.800 kr
  • Efnisskrá

    Hildegard von Bingen O Frondens Virga
    Antonio Vivaldi Konsert fyrir fjórar fiðlur
    Georg Friedrich Händel Ombra mai fu, úr Serse
    Georg Friedrich Händel Flammende Rose, úr Níu þýskum aríum
    Jean-Philippe Rameau Entrée de Polymnie, úr Les Boréades
    Jean-Philippe Rameau Les Sauvages, úr Les Indes Galantes
    Jean-Philippe Rameau Tendre Amour, úr Les Indes Galantes
    Johann Sebastian Bach Brandenborgarkonsert nr. 6
    Arcangelo Corelli Concerto Grosso op. 6 nr. 4
    Georg Friedrich Händel Tornami a vagheggiar, úr Alcina
    Henry Purcell When I am laid in earth

  • Hljómsveitarstjóri og fiðluleikari

    Peter Hanson

  • Einsöngvari

    María Konráðsdóttir

Tónleikakynning » 31. okt. kl. 18:00

Tónlistarfjársjóður barokktímans geymir fjölmarga dýrgripi sem heilla sérhverja nýja kynslóð. Enn í dag er tónlistarfólk að uppgötva snilldarverk frá sautjándu og átjándu öld sem reynast ný og fersk í eyrum áheyrenda samtímans, rétt eins og þau sígrænu öndvegisverk Vivaldis, Händels, Bachs og Corellis sem hljóma í þessari barokkveislu Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Einsöngvari á tónleikunum er María Konráðsdóttir sópran, sem hlotið hefur mikið lof fyrir bjarta, tæra og forkunnarfagra rödd samhliða fágaðri en tjáningarríkri túlkun. Hér syngur María litríkar og leikandi aríur úr óperum Händels. Á tónleikunum verða einnig flutt verk eftir Ramau auk miðaldaverksins O Frondens Virga eftir Hildegard von Bingen, en Von Bingen stofnaði sitt eigið Benediktínaklaustur um 1150 þar sem hún samdi fjölda verka sem heillað hafa lærða og leika á seinni öldum.

María hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir söng sinn, komið fram á fjölda ljóðatónleika, bæði hérlendis og erlendis og sungið á hátíðum á borð við Sumartónleika í Skálholti, Reykjavík Early Music Festival og Þjóðlagahátíð á Siglufirði. María hefur lagt sérstaka rækt við tónlist fyrri alda og hefur hún sungið einsöng með barokksveitum á borð við Lautten Compagney í Berlín og Barokkbandið Brák. María lauk meistaranámi í ljóða- og óratoríusöng 2018 frá Listaháskólanum í Berlín.

Það er breski fiðluleikarinn og hljómsveitarstjórinn Peter Hanson sem leiðir sveitina á þessum tónleikum, en Hanson hefur um langt árabil helgað sig upprunaflutningi barokktónlistar — aðferð sem miðar að því að fanga anda tónlistarinnar eins og hún hljómaði á sínum tíma. Hanson hefur starfað sem konsertmeistari í hinni víðfrægu hljómsveit Johns Eliots Gardiner, Orchestre Revolutionnaire et Romantique, í aldarfjórðung. Hann kemur víða fram með þekktum hljómsveitum, ýmist sem einleikari, konsertmeistari eða hljómsveitarstjóri — jafnvel allt þrennt í senn.

*Tónleikarnir eru u.þ.b. tvær klst. með tuttugu mínútna hléi.

Sækja tónleikaskrá