EN

Beethoven & Shostakovitsj

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
15. jan. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.990 - 10.100 kr.
Kaupa miða
  • Efnisskrá

    Ludwig van Beethoven Fiðlukonsert
    Dmítríj Shostakovitsj Sinfónía nr. 5

  • Hljómsveitarstjóri

    Bjarni Frímann Bjarnason

  • Einleikari

    Clara-Jumi Kang

Tvö stórvirki tónlistarsögunnar eru viðfangsefni hljómsveitarinnar á þessum tónleikum. Viðtökurnar við þeim á sínum tíma voru engu að síður afar misjafnar. Það verður nefnilega seint sagt að fiðlukonsert Beethovens hafi slegið í gegn þegar hann var frumfluttur á köldu desemberkvöldi í Vínarborg árið 1806. Konsertinum var mætt af miklu fálæti og féll hann fljótt í gleymsku. Það var svo tæpum 40 árum síðar að hinn 12 ára gamli Joseph Joachim flutti konsertinn í London undir stjórn Felix Mendelssohns. Þá loks var heimurinn tilbúinn að meðtaka þennan mikilfenglega sinfóníska fiðlukonsert og hefur hann alla tíð síðan verið fastagestur á tónleikadagskrám hljómsveita og fiðluleikara um heim allan.

Fimmtu sinfóníu Shostakovitsj var á hinn bóginn tekið fagnandi með standandi lófataki við frumflutninginn árið 1937. Almenningur fagnaði og það sem meira var, pólítisk yfirvöld í Sovétríkjunum gerðu það einnig. Það þykir þó næsta víst að túlkun þeirra á verkinu hafi ekki verið sú sama. Yfirvöld heyrðu „heiðarlegt svar sovésks listamanns við réttmætri gagnrýni“ líkt og þekkt tilvitnun segir, á meðan almenningur upplifði verkið sem áhrifamikla lýsingu á kúgun Stalínstímans. Sinfónían hefur engu að síður verið sú sinfónía Shostakovitsj sem flutt er hvað oftast og lætur engan ósnortinn.

Kóresk-þýski fiðluleikarinn Clara-Jumi Kang nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar fyrir tónlistarhæfileika sína og tæknilega færni. Á ferli sínum hefur hún hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Upptaka hennar ásamt píanóleikaranum Sunwook Kim á öllum fiðlusónötum Beethovens, sem út kom hjá Accentus árið 2021, hefur fengið afar góða dóma og tilnefningar. Hljómsveitarstjórinn, Bjarni Frímann Bjarnason, hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands margoft við góðan orðstír.