EN

Benedikt syngur Bach og Händel

Aðventutónleikar Sinfóníunnar

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
2. des. 2021 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.900 – 8.500 kr.

Athugið að tónleikakynning fellur niður í kvöld.

Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari hefur á undanförnum árum getið sér afar gott orð fyrir flutning sinn á barokktónlist, einkum verkum Bachs og Händels. Hann vakti athygli heimsins í einu vetfangi á föstudaginn langa 2020, þegar hann flutti Jóhannesarpassíu Bachs í beinni útsendingu frá Tómasarkirkjunni í Leipzig í eigin útgáfu fyrir tenórsöngvara og tvo hljóðfæraleikara. Hefðbundnum flutningi verksins um páskahelgina hafði þá verið aflýst víða um heim vegna kórónuveirufaraldurs, en í staðinn fylgdust tugþúsundir með afreki Benedikts á netinu og hlaut hann meðal annars Opus Klassik-verðlaunin fyrir frammistöðu sína.

Nú syngur Benedikt í fyrsta sinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands, aríur úr kantötum og óratoríum eftir Händel og Bach. Meðal annars hljóma tvær vinsælar aríur úr Messíasi en einnig hin dásamlega aría Waft Her, Angels, sem er meðal þess fegursta sem Händel samdi. Þá leikur hljómsveitin þætti úr hinni óviðjafnanlegu Lagartónlist (Water Music), sem Händel samdi Georg I. Bretakonungi til yndisauka þar sem hann sigldi upp Tempsá með fríðu föruneyti eitt ljúft sumarkvöld árið 1717. Tónleikunum lýkur með hinni bráðskemmtilegu sinfóníu nr. 99 eftir Haydn, sem var ein þeirra sem hann samdi fyrir tónleikaröð sína í Lundúnum síðla á ævinni.

Belgíski stjórnandinn Dirk Vermeulen hefur helgað feril sinn flutning tónlistar frá 18. öld og meðal annars stjórnað Hljómsveit 18. aldarinnar auk þess að kenna við Tónlistarháskólann í Brussel. Hann stjórnar nú aðventutónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í þriðja sinn en fyrri tónleikar hans á Íslandi vöktu óblandna aðdáun tónleikagesta jafnt sem hljómsveitar.

Sækja tónleikaskrá