EN

Elgar & Eldfuglinn

Föstudagsröð

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
13. mar. 2026 » 18:00 » Föstudagur Eldborg | Harpa 4.600 kr
Kaupa miða
  • Efnisskrá

    Edward Elgar Sellókonsert
    Ígor Stravinskíj Svíta úr Eldfuglinum

  • Hljómsveitarstjóri

    Eva Ollikainen

  • Einleikari

    Kian Soltani

Á þessum tónleikum er boðið upp á tónlist sem Sinfóníuhljómsveit Íslands verður með í farangrinum á tónleikaferð til Evrópu. Sellókonsert Edwards Elgar er eitt dáðasta einleiksverk tónlistarsögunnar og hér njóta sín til fullnustu einstök tök einleikarans, Kians Soltani, á hljóðfærinu. Þessi tilfinningaþrungna tónlist kviknaði upp úr hildarleik fyrri heimsstyrjaldar og þeirri angist sem átökin sköpuðu, jafnt í samskiptum þjóða og í hugarheimi næmra listamanna á borð við Elgar sjálfan.

Eldfuglinn verður einnig með í ferðalaginu, hljómsveitarsvítan litríka sem Ígor Stravinskíj vann upp úr byltingarkenndum balletti sínum sem frumfluttur var árið 1910. Fuglinn sá sprettur úr rússneskri þjóðsagnahefð, tónlistin er litrík og þar eru allir möguleikar sinfóníuhljómsveitar nýttir til hins ýtrasta. Í verkinu takast á góð og ill öfl en sem betur fer gengur allt fallega upp að lokum.