| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 10. apr. 2027 » 14:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 6.700 - 9.600 kr. | ||
| Kaupa miða | ||||
-
Efnisskrá
Kvikmyndin Konungur ljónanna (Lion King) með íslensku tali á stóra tjaldinu við lifandi tónlistarflutning Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
-
Leikstjórar:
Roger Allers
Rob Minkoff
-
Tónlist
Hans Zimmer
Upplifðu þessa sígidu teiknimynd á hvíta tjaldinu á meðan Óskarsverðlaunuð® kvikmynatónlist Hans Zimmer hljómar í lifandi flutningi.
Konungur ljónanna (The Lion King ) frá Walt Disney teiknimyndastúdíóinu leiðir áhorfendur út á afrísku slétturnar þar sem framtíaðrkonungur fæðist. Simba dáir föður sinn, Mufasa konung, og tekur konungleg örlög sín alvarlega. En ekki eru allir í ríkinu jafn ánægðir með komu ljónsungans. Scar, bróðir Mufasa og upphaflegur erfingi hásætisins, hefur sín eigin áform. Baráttan um Pride Rock einkennist af svikum, sorg og átökum sem leiða að lokum til þess að Simba er hrakinn í útlegð. Með hjálp æskuvinkonu sinnar Nölu og tveggja nýrra og skemmtilegra vina, Tímon og Pumba, verður Simba að finna leið til að horfast í augu við fortíð sína og endurheimta það sem réttilega tilheyrir honum.
Hin sígilda teiknimynd frá árinu 1994 er þekkt fyrir ógleymanlega tónlist eftir Óskars® -og Grammy®-verðlaunahafana Hans Zimmer og Elton John, ásamt textahöfundinum Tim Rice. Þá átti suður-afríski tónlistarmaðurinn og tónskáldið Lebo M., sem hlaut Grammy®-verðlaun fyrir framlag sitt til myndarinnar, einnig stóran þátt í einstökum hljóðheimi hennar.
Myndin er sýnd með íslensku og ensku tali.
Föstudagskvöld kl.19 með ensku tali og íslenskum texta.
Laugardag kl.14 með íslensku tali.
