Alexandra Dariescu
Píanó
Rúmenski píanistinn Alexandra Dariescu er þekkt fyrir flutning á tónverkum eftir tónskáld sem hafa fallið í gleymsku, og þá sérstaklega verk eftir konur. Hún hefur myndað sterk tengsl við hljómsveitir eins og BBC-sinfóníuhljómsveitina, Sinfóníuhljómsveitina í London, Þjóðarhljómsveitina í Frakklandi og Konunglegu fílharmóníusveitirnar í Stokkhólmi, Ósló og Kaupmannahöfn, og hefur unnið með hljómsveitarstjórum á borð við Sakari Oramo, Vasily Petrenko og Cristian Măcelaru. Hún hefur frumflutt nýuppgötvaða konserta eftir Leokadiya Kashperova, Nadiu Boulanger og George Enescu, auk fjögurra konsertar sem hafa verið samdir sérstaklega fyrir hana.
Alexandra Dariescu kemur í fyrsta sinn fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á starfsárinu 2026/27, þegar hún flytur píanókonsert Clöru Schumann í fyrsta sinn á Íslandi, undir stjórn John Storgårds.
