EN

Andris Poga

Hljómsveitarstjóri

Andris Poga er aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar í Stavanger í Noregi og listrænn ráðgjafi Lettnesku þjóðarhljómsveitarinnar. Hann vann Evgeny Svetlanov alþjóðlegu hljómsveitarstjórakeppnina árið 2010 og var aðstoðarmaður Paavo Järvi hjá Orchestre de Paris og hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Boston. Hann er reglulegur gestur hjá helstu hljómsveitum heims, þar á meðal Elbfílharmóníunni í Hamborg, Útvarpshljómsveitinni í Köln, NHK Sinfóníunni í Tókýó og mörgum öðrum víða um heim.

Andris Poga stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn í október 2024. Á efnisskránni voru píanókonsert nr. 4 eftir Ludwig van Beethoven með píanistanum Jan Lisiecki og sinfónía nr. 8 eftir Dmitríj Shostakovitsj. Tónleikarnir heppnuðust það vel að honum var umsvifalaust boðið aftur að vinna með hljómsveitinni.